Til að sjá tíma komandi vikna smelltu á >
Ef þú vilt eiga minningu um eftirminnilegann hitting er Gusa málið
Þar sem fataþemaið er sundföt og náttsloppur, einfallt og gott
Hópefli, Afmæli, ársárártíð, vorfögnuður, saumaklúbbur, vina gusa, gæsa, steggja , jóla-,páska-, nýjárs gusa og svo má lengi telja
Einka Gusu stund er einn og hálfur tími en vara áhrif og góð minning miklu lengur
Verðið er 70.000.- og komast 18 að í gusu
Rúmt pláss , hver og einn hefur bæði efra og neðra sætið til að velja sér
Skráning á fb. messenger - á Facebooki síðunni Sánagús í Sækoti

Gusa í Sækoti er heilsurækt🔥❄️
Gusumeistari leiðir þátttakendur í gegnum þrjár lotur þar sem hiti, ilmur, tónlist og nærvera fléttast saman í einstaka upplifun. Kælingin og náttúran stór hluti af prógramminu, undir berum himni eða í sjódýfu.
Hver gusumeistari hefur sína eigin nálgun, sinn stíl og sína leið til að skapa stemningu. Því er engin gusa nákvæmlega eins – hver upplifun hefur sinn karakter, sitt flæði og sína orku.
Í gusu reynir á hitastjórnun líkamans, hjartsláttur eykst og líkaminn bregst við hitaálaginu.
Gusa snýst ekki eingöngu um að svitna eða njóta hitans. Hún snýst líka um að gefa sér tíma, hlusta á líkamann, tengjast eigin öndun og njóta samveru með öðrum.
Gusa er því meira en afþreying – hún er skipulögð vellíðunariðkun sem getur verið mikilvægur hluti af heilbrigðum lífsstíl.
Gusumeistarar í Sækoti




Sækot er nýlega innréttuð sána í grásleppuskúr á Ægisíðunni í Grímstaðavörinni.
Nafnið Sækot er tilkomið vegna grásleppukarlana sem nefndu þennan fallega beitiskúr Sækot.
Í Grímstaðavörinni við Ægisíðu er einstök aðstaða til þess að taka sjódýfu eða njóta náttúrunnar í svalandi andvara.
Með sjósundsiðju og sánuaðstæðu er nú verið að skapa nýja sögu sem hefur lífgað svæðið upp. Kjöraðstæður í fallegri náttúrunni með kuldann sem er svo kærkominn í þessu heita – kalda kombói.

Mynd af púlsi Gusara í Gusu 🔥🔥🔥❄️❄️❄️
👈 Segir meira en mörg orð 😊
🌱🌱🌱🔥🔥💦🌬❄️❄️
Púlsinn nær hæstu hæðum í lotunum þremur 🔥🔥🔥
Púlsinn lækkar þegar þú ert búin að mastera það að treysta kuldanum ❄️❄️❄️ (Allir geta lært það)
Þess vegna jafnast Gusutími á við góðann líkamsræktar æfingu 💪
Þegar Púls sem hækkar hratt og lækkar
Leysir það úr læðingi mikilvægu boðefnin
Endorfin , Dopamin og Serotonin 🌱🌱🌱
Oxitócin hamingju hormónið myndast í góðri samveru, ilmi og kunnuglegri tónlist 🥰🌸🎶
Þess vegna varir Sælutilfinningin á eftir Gusu lengi og svefnin verður einstaklega vær 😴
Margur segir að Sánu/Gusu ástundun er allra meina bót 💪💪💪
Þú getur Googl´að er Sauna Benefits Research , bætt við ...... ef það er eitthvað sem hrjáir þig 🌱🌱🌱
Kannski er Gusustund þá málið 🔥
Í Gusumeistara-náminu er Fræjum plantað hjá upprennandi gusumeisturum 🌱 🌱 🌱
Þú kynnist töfraheimi gusunnar í gegnum hlutverk gusumeistarans og lærir mikilvægan grunn til að leiða góða gusu 👌
Gusumeistaranám er endurnærandi námskeið þar sem þú lærir samhliða því að njóta.
Að vera Gusumeistari eru í ótal horn að líta og eru ákveðin grunnatriði sem eru mikilvæg að læra til í framhaldi að geta boðið upp á góða leiðsögn í gusutíma 🔥
Um kennarann
- 2024 þróaði Vala Baldursdóttir íslenskt Gusumeistaranám að danskri fyrirmynd 🇩🇰
- 2020 byrjaði Vala að Gusa í Danmörku sem iðkandi og kolféll fyrir þessari gefandi iðju 🙃
- 2020 um haustið kynntist hún þáverandi Danmörku meistaranum í Saunagus og hóf að læra það að vera "Gusmester" bóklegi hlutinn og að leiða gusur 🌿
- 2021 til 2024 Gusaði Vala í Fargufunni góðu hjá Hafdísi og var það dýrmæt reynsla á tímum sem Íslendingar hafa verið að uppgötva snildina 🇮🇸
- 2022 stofnaði Vala Arctic Saunagus á Grænlandi með tveimur Grænlenskum konum Christina og Tukummeq - Grænlendingar einnig heppnir að vera með kuldann sem er svo kærkominn í iðjunni ❄️🇬🇱
Það má með sanni segja að Íslendingar hafi mótað sína eigin Gusumenningu og með okkar kærkomna kulda fær Gusan að mörgu leiti aðra merkingu en í heitari löndum - má nefna að Gusu iðjan "Aufguss" er stundað um allan heim 🌏
Á námskeiðinu verður farið yfir - hver munurinn er á Gusum hérlendis og erlendis ❤️



Gusumeistarar



