Gusa
gusa-1280

Gusa í Sækoti er heilsurækt🔥❄️

Gusumeistari leiðir þátttakendur í gegnum þrjár lotur þar sem hiti, ilmur, tónlist og nærvera fléttast saman í einstaka upplifun. Kælingin og náttúran stór hluti af prógramminu, undir berum himni eða í sjódýfu.

Hver gusumeistari hefur sína eigin nálgun, sinn stíl og sína leið til að skapa stemningu. Því er engin gusa nákvæmlega eins – hver upplifun hefur sinn karakter, sitt flæði og sína orku.

Í gusu reynir á hitastjórnun líkamans, hjartsláttur eykst og líkaminn bregst við hitaálaginu.

Gusa snýst ekki eingöngu um að svitna eða njóta hitans. Hún snýst líka um að gefa sér tíma, hlusta á líkamann, tengjast eigin öndun og njóta samveru með öðrum.

Gusa er því meira en afþreying – hún er skipulögð vellíðunariðkun sem getur verið mikilvægur hluti af heilbrigðum lífsstíl.

Gusumeistarar

anney980
Anney Þorvaldsdóttir
Hulda Finnsdóttir
Hulda Finnsdóttir
att.rqZyLHw4qg0ihB9aOGogldmmsmSiwqpK1UFofg7nFUE
Vala Baldursdóttir