
Gusa getur gert sánuupplifunina notalegri, skemmtilegri og eftirminnilegri.
Púlsmælirinn á gusaranum segir meira en mörg orð - sjá mynd
Í hitanum hækkar púlsinn og hjartað vinnur hraðar. Á milli gusulotanna fær líkaminn tækifæri til að kólna, hvílast og jafna sig.
Þessar sveiflur milli hita og kælingar skapa einstaka upplifun sem margir tengja við slökun, endurnæringu og vellíðan.
En hvað með vellíðunarboðefnin?
Endorfín, dópamín og serótónín koma við sögu í flóknu samspili líkamans og taugakerfisins. Rannsóknir á hita og kulda gefa áhugaverðar vísbendingar, þótt enn sé margt órannsakað.
Og svo er það töfrablandan:
Ilmur
Tónlist
Góð samvera
Félagsleg tengsl og jákvæð upplifun geta aukið vellíðan. Oxýtósín, stundum kallað tengslahormónið, er hluti af líffræði mannlegra tengsla.
Besti vellíðunarkokteillinn 
Vísindarannsóknir benda til þess að regluleg sánunotkun geti tengst ýmsum heilsufarslegum ávinningi, meðal annars fyrir hjarta- og æðakerfið.
Ef eitthvað má við heilsuna bæta og þú ert með „orðið“ … prófaðu að gúgla "Sauna Benefits Research"
Skoðaðu rannsóknirnar, kynntu þér vísindin og athugaðu hvort sána sé eitthvað fyrir þig.
GUSA bætir góðu í heilsubrunninn